Femarelle vörurnar eru náttúruleg lausn fyrir konur sem finna fyrir einkennum breytingaskeiðs. Rannsóknir sýna að þær vinna einnig gegn beinþynningu og hafa góð áhrif á geðslagið.
Breytingaskeiðið er eitthvað sem engin kona sleppur við. Einkennin geta verið afar mismunandi og þó svo að sumar konur sleppi nokkuð vel og finni lítið fyrir breytingunum eru samt ákveðin atriði eins og beinþynning sem nauðsynlegt er að huga að.
Hvað er breytingaskeið
Breytingaskeiðið hefst þegar eggjastokkar konunnar draga úr framleiðslu á kvenhormónum og að lokum hætta. Þetta hefst oftast þegar konur eru á bilinu 45-52
ára en þó eru mörg dæmi þess að þetta ferli byrji fyrr og jafnvel síðar. Á þessu skeiði kemst ójafnvægi á hormónana sem getur lýst sér á margvíslegan máta en þetta eru einkenni eins og:
- Fyrirtíðaspenna
- Óreglulegar
- blæðingar
- Hitakóf & nætursviti
- Svefntruflanir
- Skapsveiflur
- Þurr húð og minni teygjanleiki
- Minni orka, þreyta og slen
- Pirringur
- Aukinn hjartsláttur
- Höfuðverkur
- Minni kynlöngun
- Kvíði og sorgartilfinning
Beinbrot vegna beinþynningar
Beinþynning í tengslum við tíðarhvörf leiða í mörgum tilfellum af sér beinbrot og er það talin alvarleg ógn í vestrænum þjóðfélögum þar sem meðalaldur fer sífellt hækkandi. Fyrstu tvo áratugi ævinnar byggjum við upp beinin okkar og upp úr 30 ára aldri fer smá saman að draga úr beinþéttninni. Vegna minnkandi estrogenframleiðslu hjá konum eru þær mun útsettari fyrir beinþynningu heldur en karlar. Á Íslandi má árlega rekja 1600–1800 beinbrot til beinþynningar og ætla má að önnur hver kona um fimmtugt og fimmti hver karl á Íslandi, megi eiga von á broti síðar á lífsleiðinni.
Eykur beinþéttni án aukaverkana
Ýmis lyf hafa verið framleidd til að draga úr beinþynningu og það með ágætis árangri en þó eru flest þeirra ekki án aukaverkana. Nú er hins vegar komið fram nýtt efni
sem hægt er að taka til lengri tíma Femarelle dregur úr beinþynningu og bætir geð án allra aukaverkana, það kallast DT56a og er helsta innihaldsefnið í Femarelle. Þetta er efnasamband unnið úr óerfðabreyttu soya og viðurkenndar rannsóknir sýna að það örvar estrógennema í staðbundnum vef, slær á einkenni tíðahvarfa og eykur beinþéttni, án þess að hafa nokkur neikvæð áhrif á vef í móðurlífi eða brjóstum.
Fyrir konur frá 30 ára aldri
Femarelle vörurnar eru fáanlegar í þremur gerðum sem henta konum á mismunandi stigum tíðarhvarfa en þau hefjast yfirleitt upp úr þrítugu þó svo að einkenna verði ekki vart strax. Femarelle getur slegið á þau einkenni sem talin eru upp hér fyrst í greininni og í ljósi þess að beinþéttni fer minnkandi um svipað leyti hormónabreytingar hefjast, getur inntaka á Femarelle verið ágætis forvörn fyrir einkenni breytingarskeiðsins ásamt því að minnka líkur á beinþynningu.