Femarelle er náttúruleg lausn gegn einkennum breytingaskeiðs. Það örvar estrógennema í staðbundnum vef og eykur beinþéttni án þess að hafa nokkur neikvæð áhrif á vef í móðurlífi eða brjóstum.
emarelle vörurnar eru hannaðar fyrir konur á mis munandi stigum tíðarhvarfa en þau hefjast yfirleitt upp úr þrítugu þó svo að einkenna verði ekki vart strax. Femarelle getur slegið á fjölmörg einkenni sem tengja má hormónabreytingum og þar á meðal er beinþéttni en rannsóknir sýna að líkur á beinþynningu minnka tölvuvert með inntöku.
Einkenni hormónabreytinga
Flestar konur finna fyrir því þegar hormónabreytingar hefjast en þó í mismiklum mæli. Sumar finna mikið fyrir þeim á meðan aðrar finna minna og svo er líka misjafnt hversu fjölbreyttra einkenna verður vart. Flestar konur kannast þó við að finna fyrir einhverju af eftirfarandi:
- Fyrirtíðaspenna
- Óreglulegar blæðingar
- Hitakóf & nætursviti
- Svefntruflanir
- Skapsveiflur
- Þurr húð og minni teygjanleiki
- Minni orka, þreyta og slen
- Pirringur
- Aukinn hjartsláttur
- Höfuðverkur
- Minni kynlöngun
- Kvíði og sorgartilfinning
Mæla með Femarelle
Femarelle nýtur mikilla vinsælda hjá konum allt frá 35 ára aldri og ekki að ástæðulausu. Þarna er um náttúrulega lausn að ræða sem hefur ekki bara áhrif á merkjanleg einkenni heldur líka á beinþéttni en beinþynning er sjúkdómur sem ber að taka alvarlega og er hann allt of algengur, sérstaklega hjá konum.
Halldóra Ósk Sveinsdóttir
„Eftir 7 til 10 daga inntöku samviskusamlega kvölds og morgna, fór ég að finna mun. Líkamsofninn minn var farinn að kveikja á yfirhita í tíma og ótíma en það hætti alveg. Ég vaknaði 4 – 6 sinnum á nóttu vegna svita og almenns pirrings en sef núna mjög vel sem skilar sér í meiri orku og úthaldi. Fótapirringur sem hefur hrjáð mig í mjög mörg ár hefur einnig minnkað til mikilla muna. Þetta allt þakka ég Femarelle Recharge töflunum því ef ég á þær ekki til þá láta einkennin aftur á sér kræla. Þess vegna get ég sagt með góðri samvisku að Femarelle virkar“.
Þórunn Elva Magnúsdóttir
„Í byrjun árs 2017 fór ég að finna fyrir hitaköstum bæði á daginn og einnig á nóttunni sem var mjög skrítið því mér var venjulega alltaf svo kalt. Þetta ágerðist svo meira þegar leið á sumarið og ég fór að spá í því hvað væri í gangi. Ég las um Femarelle rejuvenate og ákvað að prófa. Ég fann mikinn mun strax eða eftir u.þ.b. þrjár vikur og leið mikið betur. Ég mæli hiklaust með Femarelle því ég tek það enn þá og það stendur ekki til að hætta“.
Dídí Ásgeirsdóttir
„Ég svaf illa, vaknaði mörgum sinnum á nóttu og gat bara engan vegið sofið, nótt eftir nótt vaknaði ég kófsveitt og sæng og koddi vel blaut sem er mjög óþægilegt. Einn góðan veðurdag fékk ég nóg og ákvað að kaupa mér einn pakka af Femarelle rejuvenate og hugsaði: „Ég hef engu að tapa“. Ég var bara búin með tvö spjöld úr pakkanum þegar líf mitt breyttist og ég fann heilmikinn mun. Ég tók U-beygju í lífinu, sef miklu betur, næ miklu betri hvíld og svitinn er horfinn þannig að dagurinn á eftir er allt annar. Femarelle rejuvenate er klárlega málið“.
Guðrún Ragna Ólafsdóttir
„Þegar ég kom á breytingaskeiðið fékk ég hormóna hjá lækninum. Þeir fóru ekki vel í mig svo að ég ákvað að prófa Femarelle. Ég get ekki líkt líðan minni við þá líðan sem ég hafði áður. Ég er einnig með gigt og hef verið á lyfjum við gigtinni en mörg þeirra fara ekki of vel í mig. Eftir að ég fór að taka Femarelle fer ekkert í skapið á mér, og mér líður mikið betur í alla staði. Ég er
ekki sama manneskjan“.
Valgerður Kummer Erlingsdóttir
„Ég var farin að svitna mikið yfir daginn og var ég oft með skapsveiflur, jafnvel að ástæðulausu. Ég var auðvitað ekki ánægð með þessa líðan og fékk hormónatöflur hjá lækninum en var aldrei alveg sátt við að nota þær. Ég ákvað að hætta og hef nú notað Femarelle um nokkurt skeið og finn að mér líður mikið betur en áður. Takk fyrir að bjóða upp á Femarelle, það hefur hjálpað mér alveg ótrúlega mikið og bjargað minni líðan„.
Femarelle stutt með rannsóknum
Prófessor Andrea Genazzani, forseti Evrópuráðs í kvensjúkdómafræðum mælir með Femarelle sem fyrstu meðferð við einkennum breytingaskeiðs en það hefur færst gríðarlega í aukana að konum sé bent á náttúrulegar leiðir frekar en að taka inn hormóna. Það sem gerir Femarelle sérstakt er efnasamband, unnið úr óerfðabreyttu soya, sem kallast DT56a og viðurkenndar rannsóknir sýna að það örvar estrógennema í staðbundnum vef, slær á einkenni tíðahvarfa og styrkir bein, án þess að hafa nokkur neikvæð áhrif á vef í móðurlífi eða brjóstum. Virkni
Femarelle hefur verið staðfest með fjölda rannsókna.
Bleika slaufan
Í ár (2018) renna 200 krónur af hverjum seldum pakka af Femarelle til bleiku slaufunnar. Við erum stolt af því að geta látið gott af okkur leiða á sama tíma og við hjálpum fjölda kvenna við að draga úr eða losna við einkenni sem fylgja hormónabreytingum.