Description
Nánar um Femarelle® Unstoppable 60+
Femarelle® Unstoppable er samsett úr einstakri blöndu efna sem inniheldur gerjaða soja afleiðu (DT56a), B2-vítamín, Bíótín (B7-vítamín), D3-vítamín og kalk.
D-vítamín á þátt í að viðhalda heilbrigðum beinum og minnkar því líkurnar á því að konur detti vegna lélegrar líkamsstöðu og slakra vöðva. Fall er áhættuþáttur beinbrota bæði hjá körlum og konum 60 ára og eldri.
Auk þess leggja efnin sitt af mörkum í eðlilegu viðhaldi slímhúðar, húðar og starfsemi taugakerfisins, ásamt því að viðhalda eðlilegum hárvexti og góðri andlegri heilsu.
Femarelle® er framleitt með sérstökum aðferðum og engum kemískum efnum er bætt við í framleiðsluferlinu. Þetta einstaka ferli eykur virkni virku efnanna sem finnast í Femarelle ® Unstoppable. Auk þess fer efnið í gegnum stífar og yfirgripsmiklar örveru- og lífefnafræðiprófanir á meðan á framleiðsluferlinu stendur svo notendur eru öruggir um að þeir eru að fá sömu virku efnin og fjöldi rannsókna byggir á.
Femarelle® Unstoppable inniheldur ekkert estrógen og er ekki ísóflavóníð þykkni. Sojaþykknið í DT56a inniheldur allar lífsnauðsynlegar amínósýrurnar.
Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótaefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma og tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma á borð við flogaveiki, ofvirkan skjaldkirtil og sykursýki.
Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótaefni eiga ekki að koma í staðinn fyrir fjölbreytt og hollt mataræði.