Maríanna Björg fór skyndilega að upplifa mikil einkenni breytingaskeiðsins 53 ára gömul. Daginn í dag, tveimur árum seinna mælir hún hiklaust með Femarelle fyrir allar konur sem komnar eru á þetta margbreytilega skeið þar sem varan breytti hennar líðan til hins betra.
„Þegar ég hóf inntöku Femarelle fann ég strax mikinn mun á líðan, ég varð orkumeiri og aðeins 3 vikum seinna voru hitakófin gjörsamlega hætt“
Maríanna Björg
,,Ég hafði heyrt um Femarelle en systir mín notaði það með góðum árangri og sagði mér frá því. Ég ákvað að prófa Femarelle Recharge þar sem ég var orðin ansi þreytt á svefnlausum nóttum, vanlíðan og endalausum hitakófum, ég hafði prófað ýmislegt annað en ekkert virtist hjálpa mér. Þegar ég hóf inntöku Femarelle fann strax mikinn mun á líðan, ég varð orkumeiri og aðeins 3 vikum seinna voru hitakófin gjörsamlega hætt, þvílíkur léttir sem það var. Ég hef notað Femarelle núna í 2 ár og prófaði fyrir stuttu síðan að taka pásu þar sem ég var viss um að ég væri hreinlega komin yfir þetta tímabil. En viti menn, það leið mjög stuttur tími þar til ég byrjaði að svitna aftur og þá sá ég það á svörtu og hvítu að Femarelle var það eina sem virkaði fyrir mig. Ég var fljót að byrja að taka það aftur og fann strax hvað mér líður vel þegar ég tek inn Femarelle. Enn og aftur varð ég laus við öll einkenni og er svo hamingjusöm með að líða eins og ég sjálf aftur daginn í dag. Ég mun ekki sleppa því að taka inn Femarelle aftur, það er það eina sem hefur virkað fyrir mig.“ segir Maríanna alsæl.