Femarelle Rejuvenate við upphaf hormónabreytinga er náttúruleg lausn og er virkni staðfest með klínískum rannsóknum. Femarelle getur minnkað beinþynningu og haft góð áhrif á geðheilsu.
Breytingaskeiðið (tíðahvörf) er eitthvað sem engin kona sleppur við. Einkenna fer þó oft að gæta allt að 10 árum áður en eiginleg tíðahvörf hefjast. Einkennin geta verið afar mismunandi og þó svo að sumar konur sleppi nokkuð vel og finni lítið fyrir breytingunum eru samt ákveðin einkenni sem margar hverjar finna fyrir.
Einkenni eftir þrítugt
Það eru mörg dæmi þess að konur fari að finna fyrir einkennum sem tengjast breyttri hormónastarfsemi upp úr þrítugu, og stundum fyrr. Þessi einkenni tengjast
minnkandi framleiðslu estrogens og geta t.d. verið:
- Fyrirtíðaspenna
- Óreglulegar blæðingar
- Hitakóf og nætursviti
- Svefntruflanir
- Skapsveiflur
- Minni orka, þreyta og slen
- Pirringur
- Aukinn hjartsláttur
- Höfuðverkur
- Minni kynlöngun
Það er orðið sífellt algengara að konur þjáist á einhvern hátt vegna ójafnvægis í hormónaframleiðslu. Heilbrigt líferni getur leikið stórt hlutverk í að draga úr einkennum en oftar en ekki þarf meira til.
Hitaköstin hurfu
Þórunn Elva Magnúsdóttir er 46 ára gömul og hefur notað Femarelle Rejuvenate á annað ár núna og finnur mikinn mun: „Í byrjun árs 2017 fór ég að finna fyrir hitaköstum bæði á daginn og einnig á nóttunni sem var mjög skrítið því mér var venjulega alltaf svo kalt. Þetta ágerðist svo meira þegar leið á sumarið og ég fór að spá í því hvað væri í gangi. Ég las um Femarelle Rejuvenate sem konur á mínum aldri væru að taka með góðum árangri og ákvað að prófa. Ég fann mikinn mun strax eða eftir u.þ.b. þrjár vikur og líður miklu betur. Ég hef tekið Femarelle núna í eitt ár og stendur ekki til að hætta að taka það svo ég get hiklaust mælt með því.
Femarelle Rejuvenate
Fjölmargir kvensjúkdómalæknar mæla með Femarelle sem fyrstu meðferð við tíðahvörf en að baki Femarellelínunni liggja fjölmargar klínískar rannsóknir sem tryggja virkni og auka líkur á betri lífsgæðum. Beinþéttni fer minnkandi um svipað leyti og hormónabreytingar hefjast og getur inntaka á Femarelle Rejuvenate verið ágætis forvörn gegn einkennum breytingaskeiðsins ásamt því að minnka verulega líkur á beinþynningu. Auk DT56a sem slær á einkennin inniheldur Femarelle einnig hörfræ sem stuðla að meira hormónajafnvægi, B2 og B7vítamín fyrir eðlileg efnaskipti, aukna orku og viðhald húðar, slímhúðar og hárs.
Ég fann mikinn mun strax eða eftir u.þ.b. þrjár vikur og líður miklu betur
Þórunn Elva Magnúsdóttir, 46 ára