Femarelle vörurnar eru náttúruleg lausn fyrir fjölmargar konur sem finna fyrir einkennum breytingaskeiðs. Þær slá á einkenni tíðahvarfa og hafa góð áhrif á beinþéttnina.
Breytingaskeiðið er eitthvað sem engin kona sleppur við. Einkennin geta verið afar mismunandi og þó svo að sumar konur sleppi nokkuð vel og finni lítið fyrir breytingunum eru fjölmargar sem þjást á einhvern hátt.
Hvað er breytingaskeið
Breytingaskeiðið hefst þegar eggjastokkar konunnar draga úr framleiðslu á kvenhormónum og að lokum hætta. Þetta hefst oftast þegar konur eru á bilinu 45-52 ára en þó eru mörg dæmi þess að þetta ferli byrji fyrr og jafnvel síðar. Á þessu skeiði kemst ójafnvægi á hormónana sem getur lýst sér á margvíslegan máta en þetta eru einkenni eins og:
- Fyrirtíðaspenna
- Óreglulegar blæðingar
- Hitakóf & nætursviti
- Svefntruflanir
- Skapsveiflur
- Þurr húð og minni teygjanleiki
- Minni orka, þreyta og slen
- Pirringur
- Aukinn hjartsláttur
- Höfuðverkur
- Minni kynlöngun
- Kvíði og sorgartilfinning
Lífsstíll og náttúrulegar lausnir
Til að lágmarka eða draga úr einkennum breytingaskeiðsins er gott að fara í smá sjálfskoðun og athuga hvort það er ekki eitthvað sem hægt er að gera án mikils tilkostnaðar en eins og alltaf þá skiptir lífsstíll okkar gríðarlega miklu máli. Að borða hreina fæðu, hreyfa sig reglulega (helst alla daga), sofa vel, rækta sálina og sambönd við fjölskyldu, vini og kunningja getur skipt sköpum og í öllum tilvikum þá eru meiri lífsgæði fólgin í heilbrigðum lífsstíl. Fjölmargar náttúrulegar lausnir eru svo til sem geta slegið enn frekar á einkennin og er þá frekar einstaklingsbundið hvað virkar og hvað ekki. Því verða allir að prófa sig svolítið áfram og gefa sér nokkrar vikur til að finna út hvort viðkomandi lausn hentar eða ekki, sama hvað prófað er.
Femarelle virkar!
Halldóra Ósk Sveinsdóttir hefur fundið fyrir einkennum breytingaskeiðsins í þó nokkur ár og hafa þau farið stigvaxandi með hækkandi aldri. Að lokum voru einkennin þó orðin þannig að ekki var lengur við unað. Hún hefur þetta að segja um Femarelle: „Þegar að því kom að ég vildi gera eitthvað í málunum, hugnaðist mér ekki að fara á hormónalyf svo ég frestaði alltaf að panta mér tíma hjá lækni. Einhvers staðar rakst ég á umfjöllun um náttúrulega lausn sem var Femarelle og góðar reynslusögur af því. Ég ákvað að kaupa mér einn pakka og prufa, það gæti varla skaðað nokkuð. Eftir 7 til 10 daga inntöku samviskusamlega kvölds og morgna, fór ég að finna mun. Líkamsofninn minn var farinn að kveikja á yfirhita í tíma og ótíma en það hætti alveg. Ég vaknaði 4 til 6 sinnum á nóttu vegna svita og almenns pirrings en sef núna mjög vel sem skilar sér í meiri orku og úthaldi. Fótapirringur sem hefur hrjáð mig í mjög mörg ár hefur einnig minnkað til mikilla muna. Þetta allt þakka ég Femarelle Recharge töflunum því ef ég á þær ekki til þá láta einkennin aftur á sér kræla. Þess vegna get ég sagt með góðri samvisku að Femarelle virkar.
Rannsóknir staðfesta virkni
Prófessor Andrea Genazzani, forseti Evrópuráðs í kvensjúkdómafræðum, mælir með Femarelle sem fyrstu meðferð við einkennum breytingaskeiðs en það sem gerir Femarelle sérstakt er efnasamband, unnið úr óerfðabreyttu soja, sem kallast DT56a og viðurkenndar rannsóknir sýna að það örvar estrógennema í staðbundnum vef, slær á einkenni tíðahvarfa og styrkir bein, án þess að hafa nokkur neikvæð áhrif á vef í móðurlífi eða brjóstum.